Hvað felst í sköpunargáfunni?
Þriðjudagur, 28. apríl 2009
Í sköpunargáfunni er falinn hæfileikinn til að upphugsa frumlegar lausnir á hversdagslegum vandamálum, að tengja saman óskilda þætti í skiljanlega niðurstöðu. Ég tel að innbyggðir kerfislægir þættir skólakerfisins loki á sköpunargáfu/creativity nemandans.
Frumleg hugmynd sem hefur gildi er afurð hugmynda sem ekki voru svo frumlegar eða voru það en höfðu ekki gildi fyrir hugsuðinn eða samhengið sem henni var ætlað að vera í. Frumleg hugmynd verður ekki til nema í umhverfi þar sem ófullkomin og jafnvel röng hugsun er velkomin, að hafa rétt til að hafa rangt fyrir sér. Þetta er grundvallaratriði. Skólaumhverfi þar sem refsað er fyrir að hafa rangt fyrir sér venur nemendur af því að taka til máls, tjá hug sinn. Þögnin, að taka ekki til máls verður sjálfgild staða nemandans. Við þetta bætist kennsluaðferð sem í grunninn er brúkuð í grunnskólum landsins, kennd við pedagogy, sem á uppruna sinn í kaþólskum klausturskólum frá miðöldum þar sem nemendur kirkjunnar tóku á móti guðsorði á forræði kennara sinna, ítroðsla.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.