Byltingin; Nettengda tölvan.
Þriðjudagur, 28. apríl 2009
Nettengda tölvan hefur valdið grunvallarbreytingu á samfélaginu og snertir alla fleti mannlífsins. Við erum stödd í upphafi byltingar á mannlegu samfélagi sem er stærri og meiri en sú síðasta, iðnbyltingin. Ólíkt því sem var fyrir nokkrum áratugum síðan þegar samfélagið var svolítið fyrirsjáanlegt og menn unnu sína starfsæfi jafnvel á 2 til 3 vinnustöðum er samfélag nútímans síbreytilegt og menn munu vinna á 12 til 13 vinnustöðum um starfsævina. Engin leið er að sjá hver þróunin verður, engin þorir að spá fyrir um hvernig samfélagið muni líta út eftir 5 ár, samt er skólakerfinu ætlað að undirbúa nemendur sínar undir það samfélag!
Líklegast er best að undirbúa þau undir morgundaginn með því að kenna þeim að lifa daginn í dag. Það þarf að hugsa menntakerfið upp á nýtt og við þurfum að færa fólkinu aftur ímyndunaraflið sem skólakerfið hefur rænt af því í gegnum árhundruðin og sköpunargáfuna sem skólakerfið hefur kerfisbundið slökkt á með því að refsa nemendum fyrir að hafa rétt fyrir sér, spyrja kjánalegra spurninga og vafra andlega fyrir utan efnið. Það þarf að byrja á grunnskólanum og láta fólkið þaðan knýja á um breytingar í hinum kerfunum.
Hér er orðið sköpunargáfa notað yfir enska orðið Creativity en merkingin yfirfærist ekki nægjanlega vel. Því verður sköpunargáfa skilgreind þannig að í sköpunargáfunni felist getan til þess að fá/eigi frumlega hugmynd/hugsun sem hefur gildi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.